Auglýst eftir umsóknum í Útgáfu- og ferðasjóð
Íslandsdeild ICOM auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Útgáfu- og ferðasjóði félagsins fyrir tímabilið haust 2024 til vors 2025 en markmið sjóðsins er að styrkja félagsmenn til að sækja alþjóðlega fundi og ráðstefnur á vegum ICOM, auk þess að styrkja útgáfur á efni sem tengist faglegu starfi safna.