Auglýst eftir umsóknum í Útgáfu- og ferðasjóð

Íslandsdeild ICOM auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Útgáfu- og ferðasjóði félagsins fyrir árið 2026 en markmið sjóðsins er að styrkja félagsmenn til að sækja alþjóðlega fundi og ráðstefnur á vegum ICOM, auk þess að styrkja útgáfur á efni sem tengist faglegu starfi safna.

Umsækjandi þarf að vera fullgildur félagi og hafa staðið skil á félagsgjöldum síðustu tveggja ára. Í umsókn skal greint frá þeim viðburði sem til stendur að sækja, staðsetningu hans og kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðrar þátttöku, auk annarra útgjalda sem mega teljast styrkbær. Að ferð lokinni eru styrkþegar jafnframt beðnir um að skila stjórn 1-2 blaðsíðna greinargerð um það helsta sem fram fór. Greinargerðinni kann síðar að vera deilt með félagsmönnum, í heild eða að hluta, í því skyni að miðla upplýsingum um alþjóðlegt starf ICOM og þátttöku félaga Íslandsdeildarinnar.

Í þeim tilfellum sem sótt er um útgáfustyrk skal tilgreina efni útgáfunnar, efnisyfirlit, útgáfuaðila, upplag og áætlun um dreifingu. Þá er sömuleiðis hægt að sækja um styrki fyrir þýðingum eða prófarkalestri greina sem birtar verða á erlendum vettvangi. Styrkur er greiddur út eftir að styrkþegi hefur skilað til stjórnar staðfestingu vegna tilgreindrar ferðar eða útgáfu.

Umsóknir skal senda í tölvupósti til stjórnar á netfangið icom@icom.is fyrir 30. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur sjóðsins má finna hér.