Tilnefningar til Íslensku safnaverðlaunanna 2026

Tilkynnt hefur verið hvaða söfn eru tilnefnd til Íslensku safnaverðlaunanna 2024.

Íslensku safnaverðlaunin eru viðurkenning sem fellur í skaut íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi á sínu sviði. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár en fyrsta afhending þeirra fór fram árið 2000. Þá verða verðlaunin afhent í fimmtánda sinn á Alþjóðlega safnadaginn, þann 18. maí næstkomandi, af forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum. Viðburðurinn er opinn öllum.

Tilnefningar hljóta að þessu sinni (í stafrófsröð):

  • Borgarsögusafn: Inngilding og öflug tengsl við samfélagið
  • Listasafn Íslands: Viðspyrna við málverkafölsun
  • Minjasafn Austurlands: Kjarval á Austurlandi
  • Stofnun Árna Magnússonar: Heimur í orðum
  • Tækniminjasafn Austurlands: Uppbygging og endurreisn

Það eru Íslandsdeild ICOM, Alþjóðaráðs safna, og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) sem standa að verðlaununum í sameiningu.

Hægt er að lesa rökstuðning valnefndar Íslensku safnaverðlaunanna 2026 með því að smella hér.