Verið velkomin á afhendingu Íslensku safnaverðlaunanna 2026

Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráðs safna) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) bjóða áhugasömum að vera viðstödd hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum, þegar Íslensku safnaverðlaunin verða afhent í fimmtánda sinn á Alþjóðlega safnadaginn, 18. maí næstkomandi.

Athöfnin hefst kl. 16:00 en þau sem tilnefnd eru til verðlaunanna í ár eru (í stafrófsröð):

  • Borgarsögusafn Reykjavíkur: Inngilding og öflug tengsl við samfélagið
  • Listasafn Íslands: Viðspyrna við málverkafölsun
  • Minjasafn Austurlands: Kjarval á Austurlandi
  • Stofnun Árna Magnússonar: Heimur í orðum
  • Tækniminjasafn Austurlands: Uppbygging og endurreisn

Hægt er að lesa nánar um tilnefningarnar hér.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Verið öll velkomin.


Íslandsdeild ICOM og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að Íslensku safnaverðlaununum, sem er viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Verðlaunin voru afhent í fyrsta sinn árið 2000 en í ár bárust vel á annan tug tilnefninga, ýmist frá söfnunum sjálfum og frá almenningi.