ICOM Nord stækkar með inngöngu Eystrasaltsríkjanna

Miðvikudaginn 12. nóvember, á aðalfundi ICOM Nord sem haldinn var í tengslum við 27. allsherjarþing ICOM í Dúbaí, samþykktu formenn landsdeilda svæðisbandalagsins einróma að stækka ICOM Nord með inngöngu Eistlands, Lettlands og Litháens. Með þeirri ákvörðun tekur bandalagið nú til landsdeilda ICOM á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum og markar það mikilvæg tímamót í þróun samstarfsins á svæðinu.

Þá er stjórn ICOM Nord frá og með árinu 2025 svo skipuð: Eero Ehanti, formaður (Finnland), Elina Nygård, varaformaður (Svíþjóð), Hólmar Hólm, ritari (Ísland), Lasse Tjønnøy, gjaldkeri (Noregur), Søren la Cour Jensen, meðstjórnandi (Danmörk), Kai Lobjakas, meðstjórnandi (Eistland), Katrīna Kūkoja, meðstjórnandi (Lettland), Sigita Bagužaitė-Talačkienė, meðstjórnandi (Litháen).

Varamenn eru: Anne Laiti (Finnland), Karl Lysen (Svíþjóð), Sigríður Örvarsdóttir (Ísland), Håkon Roland (Noregur), Josephine Nielsen-Bergqvist (Danmörk), Aleksandra Murre (Eistland), Maija Meiere-Oša (Lettland) og Rūta Kačkutė (Litháen).

Stækkun ICOM Nord endurspeglar aukinn vilja til samstarfs og samstöðu á svæðinu og styrkir enn frekar tengsl landsdeilda ICOM á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.