28. allsherjarþing ICOM haldið í Rotterdam árið 2028

Á aðalfundi ICOM þann 14. nóvember 2025 var staðfest að 28. allsherjarþing Alþjóðaráðs safna verður haldið í Rotterdam í Hollandi árið 2028. Með þeirri ákvörðun tekur hollenska landsdeildin, ICOM Nederland, við keflinu af ICOM í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem stóð að 27. allsherjarþingi ICOM í Dúbaí árið 2025. Yfirskrift þingsins 2028 verður Byggjum brýr (e. Building Bridges).

Undir lok ferlisins stóð valið á milli Rotterdam og Oslóar en norska landsdeildin dró framboð sitt til baka áður en til atkvæðagreiðslu kom af óviðráðanlegum ástæðum. Rotterdam varð því fyrir valinu sem staður næsta allsherjarþings.