Aðalfundur ICOM í París og 80 ára afmæli samtakanna

Dagana 24. og 25. júní fóru fram 100. fundur ráðgjafaráðs ICOM og 41. aðalfundur samtakanna í höfuðstöðvum UNESCO í París. Fundirnir voru haldnir í tengslum við 80 ára afmæli ICOM og komu þar saman fulltrúar landsdeilda, alþjóðadeilda og svæðisbandalaga víðs vegar að úr heiminum. Hólmar Hólm, formaður Íslandsdeildar ICOM, og Ragnheiður Vignisdóttir, ritari, tóku þátt fyrir hönd Íslandsdeildarinnar.

Á aðalfundinum voru endurskoðaðar siðareglur ICOM fyrir söfn samþykktar með 85,90% greiddra atkvæða. Þá hefur vinnan við endurskoðunina staðið yfir um árabil og byggir á víðtæku samráði innan samtakanna. Með reglunum er sameiginlegur siðferðilegur grundvöllur fyrir starf safna uppfærður í samræmi við nýja safnaskilgreiningu ICOM frá 2022 sem og fjölmargar áskoranir samtímans.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa var boðið upp á fyrirlestra og pallborðsumræður um málefni safna og alþjóðlegt safnastarf. Þá gaf fundurinn einnig tækifæri til að eiga samtöl við fulltrúa annarra landsdeilda, alþjóðadeilda og svæðissamtaka, þar sem rædd voru sameiginleg verkefni og áframhaldandi samstarf innan ICOM.

Hægt er að nálgast uppfærðar siðareglur ICOM fyrir söfn á ensku hér. Í framhaldi af niðurstöðu aðalfundarins mun Íslandsdeildin vinna að íslenskri þýðingu og kynningu siðareglnanna hérlendis á næstu misserum.