Verið velkomin á afhendingu Íslensku safnaverðlaunanna 2024

Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráðs safna) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) bjóða ykkur að vera viðstödd hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu, þegar Íslensku safnaverðlaunin verða afhent í fjórtánda sinn á Alþjóðlega safnadaginn, þann 18. maí 2024.

Athöfnin hefst kl. 14:00 en þau söfn sem tilnefnd eru til verðlaunanna í ár eru (í stafrófsröð):

  • Gerðarsafn: Tenging milli innra og ytra safnastarfs
  • Listasafn Íslands: Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi
  • Listasafn Reykjavíkur: Framsækið miðlunarstarf
  • Sauðfjársetur á Ströndum: Samfélagsleg nálgun í safnastarfi
  • Þjóðminjasafn Íslands: Með verkum handanna: Íslenskur refilsaumur fyrri alda

Hægt er að lesa nánar um tilnefningarnar hér.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Verið öll velkomin.


Íslandsdeild ICOM og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að Íslensku safnaverðlaununum, sem er viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Verðlaunin voru afhent í fyrsta sinn árið 2000 en í ár bárust vel á annan tug tilnefninga, ýmist frá söfnunum sjálfum og frá almenningi.