Siðareglunámskeið í Safnahúsinu 10. nóvember 2021

Stjórn Íslandsdeildar ICOM stendur fyrir siðareglunámskeiði fyrir starfsfólk safna og félaga deildarinnar.

Námskeiðið mun fara fram miðvikudaginn 10. nóvember, kl. 13:00-16:00, í Safnahúsinu við Hverfisgötu en leiðbeinendur verða Inga Jónsdóttir, fyrrverandi safnstjóri Listasafns Árnesinga, og Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV.

Gjald er 5.000 kr. á mann og er námsefni innifalið, auk þess sem þátttakendur fá staðfestingarskjal að námskeiði loknu.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér í síðasta lagi þann 8. nóvember.