Þann 16. september kynnti fastanefndin ETHCOM, sem fjallar um málefni tengd siðareglum ICOM, fyrstu heildardrög að endurskoðuðum siðareglum á sérstökum veffundi en þar með hefst fjórði fasi samráðsferlisins um endurskoðun reglnanna, sem áætlað er að ljúka formlega með innleiðingu uppfærðra siðareglna á 27. allsherjarþingi ICOM í nóvember á næsta ári.
ETHCOM kallar jafnframt eftir viðbrögðum frá undirdeildum ICOM og er félögum því bent á að hafa samband við stjórn Íslandsdeildarinnar með því að senda póst á icom@icom.is, vilji þeir koma sérstökum ábendingum á framfæri við fastanefndina vegna verksins.
Þá eru félagar eindregið hvattir til þess að kynna sér drögin en skjalið má nálgast í heild sinni (á ensku) með því að smella hér.
Á Farskóla FÍSOS mun Íslandsdeild ICOM svo standa fyrir málstofunni Endurskoðun siðareglna ICOM – hafðu áhrif, þar sem ætlunin er að búa til samræðuvettvang og virkja félaga til skoðanaskipta um fyrstu drög endurskoðaðra siðareglna. Verður málstofan haldin föstudaginn 4. september kl. 10:30 til 11:30 og beinir stjórn Íslandsdeildar því til allra áhugasamra farskólagesta að skrá sig til þátttöku í málstofunni hér.
Láttu í þér heyra – hafðu áhrif!