Aðalfundur Íslandsdeildar ICOM var haldinn í Hafnarborg þann 20. maí 2025. Á fundinum var sinnt venjulegum aðalfundarstörfum skv. 6. gr. laga félagsins: skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2024 til 2025 var lögð fram og eins endurskoðaðir ársreikningar 2024, auk þess sem starfsáætlun og helstu verkefni ársins 2025 voru kynnt. Fundarstjóri var Þorvaldur Gröndal, að tilnefningu formanns.
Þakkar stjórn þeim félögum sem mættu og tóku þátt í fundinum og hlakkar til komandi verkefna með safnafólki um land allt.
Skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2024 til 2025 má lesa með því að smella hér.