Endurskoðun siðareglna ICOM: fyrirlestur og umræður með Dr. Sally Yerkovich

Íslandsdeild ICOM býður félögum, safnafólki, fræðamönnum og hagsmunaaðilum til sérstaks fundar með Dr. Sally Yerkovich, sem leitt hefur endurskoðun siðareglna ICOM fyrir söfn undanfarin ár. Fundurinn fer fram í húsakynnum safnaráðs fimmtudaginn 5. mars kl. 10:00 til 11:30, Austurstræti 5, 4. hæð.

Hólmar Hólm, formaður Íslandsdeildar ICOM, setur fundinn og kynnir fyrirlesara dagsins. Þá flytur Dr. Yerkovich erindi um vinnuna við endurskoðun siðareglna ICOM, nýjustu drög og helstu áherslur. Að erindinu loknu verður tími fyrir opnar umræður og fyrirspurnir. Viðburðurinn verður á ensku.

Hægt er að nálgast þriðju heildardrög af endurskoðuðum siðareglum ICOM fyrir söfn hér.

Um fyrirlesarann:
Dr. Sally Yerkovich er aðjúnkt í mannfræði við Columbia-háskóla og stýrir fræðslu- og sérverkefnum hjá American-Scandinavian Foundation í New York. Hún leiðir endurskoðun siðareglna ICOM fyrir söfn og var áður formaður fastanefndar ICOM um siðareglurnar, ETHCOM. Sem fræðimaður á sviði menningar- og mannfræði hefur hún víðtæka reynslu af stjórnun safna- og menningarstofnana í New York og Washington D.C., meðal annars hjá The New Jersey Historical Society og Museum for African Art. Hún er jafnframt höfundur bókarinnar A Practical Guide to Museum Ethics.