Íslandsdeild ICOM auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Útgáfu- og ferðasjóði félagsins fyrir tímabilið vor til haust 2025 en markmið sjóðsins er að styrkja félagsmenn til að sækja alþjóðlega fundi og ráðstefnur á vegum ICOM, auk þess að styrkja útgáfur á efni sem tengist faglegu starfi safna.
Félagar, sem hyggjast sækja allsherjarþing ICOM í Dúbaí í nóvember 2025, eru sérstaklega hvattir til að sækja um.
Umsækjandi þarf að vera fullgildur félagi og hafa staðið skil á félagsgjöldum síðustu tveggja ára. Í umsókn skal greint frá þeim viðburði sem til stendur að sækja, staðsetningu hans og kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðrar þátttöku, auk annarra útgjalda sem mega teljast styrkbær.
Í þeim tilfellum sem sótt er um útgáfustyrk skal tilgreina efni útgáfunnar, efnisyfirlit, útgáfuaðila, upplag og áætlun um dreifingu. Þá er sömuleiðis hægt að sækja um styrki fyrir þýðingum eða prófarkalestri greina sem birtar verða á erlendum vettvangi. Styrkur er greiddur út eftir að styrkþegi hefur skilað til stjórnar staðfestingu vegna tilgreindrar ferðar eða útgáfu.
Umsóknir skal senda í tölvupósti til stjórnar á netfangið icom@icom.is fyrir 23. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur sjóðsins má finna hér.