Auglýst eftir umsóknum í Útgáfu- og ferðasjóð

Íslandsdeild ICOM auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Útgáfu- og ferðasjóði félagsins fyrir árið 2024 en markmið sjóðsins er að styrkja félagsmenn til að sækja alþjóðlega fundi og ráðstefnur á vegum ICOM, auk þess að styrkja útgáfur á efni sem tengist faglegu starfi safna.

Eru félagar hvattir til að kynna sér viðburðadagatal ICOM þar sem finna má upplýsingar um það sem er á döfinni, svo sem ráðstefnur eða málstofur á vegum hinna fjölmörgu alþjóðlegu deilda og svæðisbandalaga samtakanna, en bent er á að einnig verður tekið við umsóknum um styrki fyrir þátttökugjaldi frá félögum sem hyggjast sækja viðburði í fjarfundarformi.

Umsækjandi þarf að vera fullgildur félagi og hafa staðið skil á félagsgjöldum síðustu tveggja ára. Í umsókn skal greint frá þeim viðburði sem til stendur að sækja, staðsetningu hans og kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðrar þátttöku, auk annarra útgjalda sem teljast styrkbær.

Í þeim tilfellum sem sótt er um útgáfustyrk skal tilgreina efni útgáfunnar, efnisyfirlit, útgáfuaðila, upplag og áætlun um dreifingu. Þá er sömuleiðis hægt að sækja um styrki fyrir þýðingum eða prófarkalestri greina sem birtar verða á erlendum vettvangi. Styrkur er greiddur út eftir að styrkþegi hefur skilað til stjórnar staðfestingu vegna tilgreindrar ferðar eða útgáfu.

Umsóknir skal senda í tölvupósti til stjórnar á netfangið icom@icom.is fyrir 15. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur sjóðsins má finna hér.