Aðalfundur og nýkjörin stjórn félagsins

Aðalfundur Íslandsdeildar ICOM var haldinn í Safnahúsinu við Hverfisgötu þann 12. apríl 2023. Á fundinum var sinnt venjulegum aðalfundarstörfum skv. 6. gr. laga félagsins: skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2022 til 2023 var lögð fram og eins endurskoðaðir ársreikningar 2022, auk þess sem starfsáætlun og helstu verkefni ársins 2023 voru kynnt. Fundarstjóri var Sigurður Trausti Traustason, að tilnefningu formanns.

Á fundinum fór einnig fram kjör nýrrar stjórnar en Ólöf Gerður Sigfúsdóttir lét af störfum sem formaður og Anna Friðbertsdóttir lét sömuleiðis af störfum sem gjaldkeri. Þá gaf Hólmar Hólm, sem setið hefur í embætti ritara undanfarið ár, kost á sér sem formaður og bauð Berglind Þorsteinsdóttir, sem gegnt hefur stöðu meðstjórnanda undanfarið ár, sig fram til embættis gjaldkera. Ekki bárust nein mótframboð til embætta og var kjör þeirra því samþykkt með lófataki fundargesta.

Í kjölfarið var kallað eftir framboðum í embætti ritara og gaf Ragnheiður Vignisdóttir, sem tók sæti meðstjórnanda á síðasta aðalfundi félagsins, kost á sér sem ritari og var kjör hennar sömuleiðis samþykkt með lófataki fundargesta. Þá voru laus embætti tveggja meðstjórnenda og buðu sig fram þær Hjördís Pálsdóttir og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir. Lauk þar með kosningu nýrrar stjórnar.

Er fráfarandi gjaldkera, Önnu Friðbertsdóttur, að lokum þakkað fyrir hennar störf í þágu félagsins, auk þess sem Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur eru færðar þakkir fyrir störf hennar sem formaður. Þá þakkar fráfarandi stjórn þeim félögum sem mættu og tóku þátt í fundinum og hlakkar nýkjörin stjórn til komandi verkefna með safnafólki um land allt.

Skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2022 til 2023 má lesa með því að smella hér.

Fráfarandi stjórn, f.v.: Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, formaður, Hólmar Hólm, ritari, Anna Friðbertsdóttir, gjaldkeri, Berglind Þorsteinsdóttir, meðstjórnandi, Ragnheiður Vignisdóttir, meðstjórnandi.

Efri mynd, nýkjörin stjórn, f.v.: Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, meðstjórnandi, Hólmar Hólm, formaður, Berglind Þorsteinsdóttir, gjaldkeri, Ragnheiður Vignisdóttir, ritari. Á myndina vantar Hjördísi Pálsdóttur, meðstjórnanda.