Aðalfundur Íslandsdeildar ICOM verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl næstkomandi, kl. 15:00-16:30, í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf skv. 6. gr. laga Íslandsdeildar ICOM:
- Ársskýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2025-2026 lögð fram.
- Endurskoðaðir ársreikningar fyrir árið 2025 lagðir fram.
- Starfsáætlun ársins 2026 kynnt.
- Kjör til stjórnar. Kjörtímabili formanns, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda lýkur á fundinum. Núverandi formaður, ritari og meðstjórnandi gefa kost á sér til endurkjörs, en gjaldkeri gefur ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Tekið er við framboðum til þessara embætta.
- Af alþjóðastarfi. Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir, nýkjörin til stjórnar ICFA (International Committee for Museums and Collections of Fine Arts), segir frá alþjóðadeildinni og þátttöku sinni í starfi hennar.
- Önnur mál.
