Íslensku safnaverðlaunin eru viðurkenning sem veitt er annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Það eru FÍSOS, Félag íslenskra safna og safnafólks, og Íslandsdeild ICOM, Alþjóðaráðs safna, sem standa að verðlaununum.
Óskað er eftir ábendingum frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum um safn eða einstök verkefni á starfssviði safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar. Söfnum er jafnframt heimilt að senda inn kynningar á eigin verkefnum. Til greina koma sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi, svo sem rannsóknir og varðveisla.
Valnefnd fer yfir innsendar ábendingar og tilnefnir söfn eða verkefni sem tilkynnt verða almenningi í vor. Stóra stundin verður svo á Alþjóðlega safnadaginn, þann 18. maí, þegar ljóst verður hvaða safn hlýtur viðurkenninguna.
Ábendingum skal skilað í síðasta lagi 1. mars 2026.
Í þeim tilfellum sem stofnanir skila inn ábendingum um eigin verkefni er óskað eftir því að 3-5 myndir, sem tengjast safninu eða verkefninu, séu látnar fylgja með sem viðhengi.
Sendist á netfangið:
safnaverdlaun@gmail.com
