Aðalfundur Íslandsdeildar ICOM verður haldinn miðvikudaginn 23. mars 2022, kl. 16:00-17:00, í Sjóminjasafninu í Reykjavík.
Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf skv. 6. gr. laga Íslandsdeildar ICOM:
- Ársskýrsla 2021 lögð fram.
- Endurskoðaðir ársreikningar 2021 lagðir fram.
- Starfsáætlun fyrir 2022 kynnt.
- Kjör til stjórnar. Óskað er eftir framboðum til formanns, ritara og meðstjórnanda. Eitt framboð hefur borist til embættis formanns og eitt til ritara.
- Ferða- og útgáfusjóður: tilkynnt um úthlutun.
- Önnur mál.