Málþing: Við tölum ekki um geymslur – heldur varðveisluhúsnæði!

Safnaráð, Íslandsdeild ICOM og FÍSOS boða til málþings í Safnahúsinu við Hverfisgötu mánudaginn 9. maí kl. 13:00-16:00 undir yfirskriftinni:
Við tölum ekki um geymslur – heldur varðveisluhúsnæði!

Fjallað verður um eftirlit og stöðu varðveislumála safna vítt og breitt um landið – sem og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir – en frummælendur koma úr ýmsum áttum og búa að víðtækri þekkingu og reynslu á starfsemi safna.

Dagskrá:

  • 13:00 – Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs, setur málþingið
  • 13:05 – Ávarp fundarstjóra, Anítu Elefsen, safnstjóra á Síldarminjasafni Íslands og formanns FÍSOS
  • 13:10 – Af hverju er Safnaráð alltaf að skipta sér af? Um húsnæðismál, eftirlit og eftirfylgni. Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs, Ingibjörg Áskelsdóttir, forvörður í eftirlitsnefnd safnaráðs, og Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga
    • Frá eftirlitsnefnd safnaráðs
    • Eftirlitsskýrslur safnaráðs gagnast við uppbyggingu Byggðasafns Árnesinga. Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga
  • 13:35 – Sameiginlegt varðveisluhúsnæði – fýsilegur kostur? Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands, Elsa Guðný Björgvinsdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands, og Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir, safnstjóri Tækniminjasafns Austurlands
  • 14:00 – Um málefni safna á Vesturlandi. Sigursteinn Sigurðsson, menningarfulltrúi Vesturlands
  • 14:15 – Safnkostur í kössum. Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga
  • 14:25 – Staða varðveislumála hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs – Finnur Ingimarsson, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs
  • 14:35 – Museum Storage: Out of the Shadows. Christine McLellan, Glasgow Museums Logistics & Programming Manager
  • 15:00 –  Hálfnað er verk þá hafið er – varðveislumál Listasafns Íslands – Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands
  • 15:10 – Nú verður allt betra – reynslan af nýju varðveisluhúsnæði Þjóðminjasafnsins á Tjarnarvöllum. Ágústa Kristófersdóttir, framkvæmdastjóri safneignar Þjóðminjasafns Íslands
  • 15:20 – Kaffi og kruðerí 

Mynd: Listasafn Íslands, birt með leyfi safnsins.